Chat with us, powered by LiveChat

Matarkompaní er framsækið fyrirtæki í veisluþjónustu og fyrirtækjaþjónustu.  Við þjónustum fjölmörg fyrirtæki í hádegisverði, sem er sendur beint í fyrirtækin í bökkum.  Auk þess tökum við að okkur ýmisskonar veisluþjónustu, t.d. fermingarveislur, árshátíðir, hlaðborð og hvaðeina.

Panta þarf hádegismat hjá okkur með amk 24 tíma fyrirvara, þar sem við leggjum okkar að mörkunum til þess að takmarka matarsóun.  Við pöntum því inn hráefni eftir þörfum, og getum þannig tryggt hagstæðara verð til viðskiptavina okkar.

                                                   Guðmundur Óli Sigurjónsson

Eigandi á Matarkompaní er Guðmundur Óli Sigurjónsson og sér hann um daglegan rekstur.  Einnig sér hann um alla þá matreiðslu sem er boðið uppá hjá Matarkompaní ásamt sínu öfluga starfsfólki .  

Guðmundur Óli útskrifaðist um jólin 2015 sem matreiðslumaður úr Hótel og Veitingaskóla Íslands. hann hefur starfað sem matreiðslumaður bæði hérlendis og erlendis fyrir og eftir nám.

 

Maður á að hlakka til hádegisverðarins

Þú getur sent okkur línu hér að neðan, eða pantað hádegisverð hér: